Umfangsmikil leit stendur nú yfir við Ölfusá á Selfossi, en talið er að karlmaður hafi fallið í ána í nótt. Leitin hefur staðið yfir frá því fyrir klukkan þrjú í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu barst upp úr hálf þrjú.
Þá þegar hófst víðtæk leit björgunarsveutarmanna og lögreglu, svo og slökkviliðsmanna af Suðurlandi, en bíll mannsins fannst við árbakka Ölfusár, skammt frá Selfosskirkju og beindist leitin í fyrstu að árbreiðunni þar undan, en Ölfusá rennur þar í flúum og djúpum álum.
Um fjörutíu manns hafa komið að leitinni, frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitum á Suðurlandi. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar sömuleiðis verið notuð við leitina, en hún hefur flogið nokkrum sinnum yfir svæðið og hefur notað hitamyndavélar og nætursjónauka við leitina.
Leit að manninum hefur ekki borið árangur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er gert ráð fyrir liðstyrk frá björgunarsveitum í Reykjavík í birtingu, þegar aukinn þungi verður færður í leit að manninum.
Uppfært: Leitinni var frestað nú undir kvöld, en hún hefst aftur í birtingu á morgun.