Karlmaður réðst á konu fyrir utan vog

Ráðist var á konu fyrir utan Vog, meðferðarheimili SÁÁ í Grafarvogi. Greint er frá þessu á vef DV. Þar segir að ofbeldismaðurinn sé karlmaður.

Þá hefur lögreglan staðfest að ráðist hafi verið á konuna um klukkan 14:00. Var maðurinn handtekinn af lögreglu,

Segir í frétt DV að konan og maðurinn hafi deilt og karlmaðurinn ráðist á konuna í kjölfarið.