Karlaveldi í íslensku atvinnulífi

Aðeins ein kona er framkvæmdastjóri í níu helstu hagsmunasamtökum atvinnulífsins og einungis tvær konur eru stjórnarformenn í sömu samtökum þrátt fyrir sex ára gamalt verkefni á þeirra vegum við að auka hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja.

Þetta kemur fram í Markaðanum í dag en þar er rætt við Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur formann Félags kvenna í atvinnulífinu um stöðu kvenna í æðstu stöðum íslenskra fyrirtækja. Á lista yfir stjórnarformenn og framkvæmdastjóra áðurnefndra samtaka sést að aðeins Samtök ferðaþjónustunnar státa af konu á framkvæmdastjórastóli og einungis Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu hafa konu sem formann. Karlar eru á öllum hinum 15 póstunum.

\"Við lítum svo á að það sé okkar hlutverk að sýna fram á þetta, \" segir Þórdís Lóa við Markaðinn og er ekkert sérstaklega ánægð með að það sé fimm sinnum algengara að karlar stjórni hagsmunasamtökum atvinnulífsins en konur, en hún segir að staða kvenna geti og muni styrkjast enn frekar í þessum geira á næstu árum: \"Stærsti sigurinn er kannski að við höfum náð að beina sjónum að konum í atvinnulífinu. Við höfum náð að draga þær aðeins fram og gera þær sýnilegar,\" segir hún um helstu sigra FKA í fimmtán ára sögu þess \"og við höfum náð að innleiða tengslanetið í kúltúr kvenna,\" bætir hún við og segir það mikilvægt, konur séu orðnar miklu meðvitaðri um mikilvægi tengslanetsins í atvinnumarkaði - og það muni hjálpa til við að tryggja þeim fleiri toppstöður í framtíðinni.