Karlar stýra peningunum

Breyta þarf lögum til að laga stöðu kvenna í atvinnulífinu, segir formaður Vinstri grænna.

Af þeim sem stýra peningum á Íslandi eru 91 prósent karlar en níu prósent konur. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG segir að það þurfi róttækar aðgerðir til að breyta stöðunni. Fjallað er um málið í nýjasta sjónvarpsþætti Kjarnans, sem er á dagskrá í kvöld.

Katrín  segir að það sé með öllu óvið­un­andi hversu lengi það taki að laga ójöfn hlut­föll milli kynja í íslensku atvinnu­lífi. Hún segir það hafa sýnt sig að það þurfi rót­tækar aðgerð­ir, til dæmis með breyt­ingu á lög­um, til að koma breyt­ingum í gegn. Dæmi um slík eru lög um lág­marks­hlut­fall kynja í stjórnum stærri fyr­ir­tækja og jafn­launa­vott­un. Katrín segir að það þurfi mögu­lega að skoða hvort það þurfi að breyta lögum um líf­eyr­is­sjóði í ljósi þess að nær allir helstu stjórn­endur þeirra,­sem sýsla með gríð­ar­legt fjár­magn og völd, séu karl­ar. Hún segir þetta um jafnlaunafrumvarpið:

 

Þetta kemur fram í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum sem frum­sýndur er á Hring­braut í kvöld klukkan 21:30. Við­fangs­efni þátt­ar­ins er ójöfn staða kynj­anna í íslensku við­skipta­lífi. Katrín er við­mæl­andi í síð­ari hluta þátt­ar­ins.

Kjarn­inn hefur síð­ast­liðin fjögur ár gert úttekt á stöðu kvenna á meðal æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á mark­að, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Úttektin nær til æðsta stjórn­anda hvers fyr­ir­tækis eða sjóðs. Nið­ur­staðan í ár, sam­kvæmt úttekt sem fram­kvæmd var í febr­úar 2017, er sú að æðstu stjórn­endur í ofan­greindum fyr­ir­tækjum séu 88 tals­ins. Af þeim eru 80 karlar en átta kon­ur. Það þýðir að 91 pró­sent þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi eru karlar en níu pró­sent kon­ur.

 Umsjónarmenn Kjarnans á Hringbraut eru Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.