Marktækur munur er milli kynjanna þegar kemur að tjáskiptum á sama tíma og fólk gengur örna sinna á salerninu. Karlar eru mun líklegri en konur til að láta það ekki hafa áhrif á símnotkun þótt þeir séu að hægja sér.
Þetta sýnir dönsk könnun sem DR Nyheder greinir frá.
Þriðji hver karl segst nota símann á salerninu en aðeins 6. hver kona.
Þá kemur fram að tíundi hver Dani tékkar á símanum sínum í hvert skipti sem fólk vaknar um miðja nótt. Það fyrsta sem fjórir af hverjum tíu gera er að athuga símann sinn.
80% telja að of mikill tími fari í símnotkun.