Karlar og krabbi á hringbraut í kvöld

Klukkan 20:30 í kvöld verður sýndur þátturinn Karlar og krabbi á Hringbraut en ekki kl. 21:00 eins og kynnt hafði verið, en ástæðan er útsendings daglegs þáttar um stjórnmálaástandið á Íslandi sem verið hefur á dagskrá Hringbrautar alla vikuna á milli klukkan 21:00 og 22:00. 

Í karlar og krabbi fjallar sjónvarpsstöðin Hringbraut  um karlmenn og krabbamein í nýrri þáttaröð, en þar kynnist Sigmundur Ernir sögum manna sem reynt hafa það á eigin skinni að greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli.