Sjónvarpsstöðin Hringbraut heldur áfram að fjalla um karlmenn og krabbamein í nýrri þáttaröð sinni í kvöld, en þar kynnist Sigmundur Ernir sögum manna sem reynt hafa það á eigin skinni að greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Sögurnar eru margar eins og sást í síðasta þætti fyrir viku og sömuleiðis þeim sem fer á skjáinn í kvöld, en þar er annars vegar rætt við Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra sem missti bróður sinn í baráttunni við meinið og varð fyrir vikið árvökulli sjálfur og hefur lifað um langt árabil eftir að hafa farið í meðferð vegna kvillans.
Hins vegar er rætt við Sigurbjörn Þorkelsson, ljóðskáld og rithöfund sem glímir enn við krabbamein, en það hefur breiðst út frá blöðruhálskirtlinum og takmarkar nú lífsgæði hans að miklum mun frá því sem var þegar hann kenndi sér einskis meins. Viðtalið við Sigurbjörn er hispurslaust og einlægt og öllum hollt að hlusta á og sjá.
Loks verður í þessum þætti eins og öllum þeim fjórum sem gerðir hafa verið um karlmenn og krabba á stöðinni rætt við Eirík Jónsson, yfirlækni á þvagfæraskurðdeild Landspítalans um meðferðarúrræð við blöðruhálskirtilskrabbameini sem er eins og fram hefur komið í þáttunum eitt allra algengasta krabbamein í körlum, á tíðum viðkvæmt mjög og erfitt í umræðu sakir þess hvað það tengist beint kynlífi og kyngetu karlmanna.
Karlar og krabbi, annar þáttur, er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld og endursýndur strax klukkan 23:00, svo og á morgun.