Samkvæmt rannsóknum þá minnka lífslíkur karla til muna við það að missa maka, þetta segir séra Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur í ,,Fólki með Sirrý\" á Hringbraut miðvikudagskvöld kl. 20:30. Vigfús og Hulda Guðmundsdóttir formaður ,,Nýrrar dögunar\" ræða lífið eftir makamissi af hlýju og einlægni. Hulda er ekkja og segir frá sinni reynslu og reynslu annarra sem hafa fengið stuðning og von í samtökum um sorg og sorgarviðbrögð. Vigfús Bjarni segir að karlar séu háðir konum um félagsleg tengsl og við það að missa eiginkonu sína þá minnki lífslíkur þeirra um allt að 11 ár samkvæmt rannsóknum. Karla á Vesturlöndum skortir tengsl. En hann bætir því við að þetta sé að breytast til batnaðar.