Karlar eru líklegri til að hjóla í vinnuna heldur en konur, samkvæmt frétt sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þá eru þó flestir sem ferðast í skóla eða vinnu á einkabíl, eða tæplega tveir þriðju. Sextán prósent í viðbót ferðast með öðrum í bíl.
Einnig er talsverður munur eftir aldurshópum, en fólk yfir fimmtugu er líklegra en hið yngra til að fara fótgangandi og fólk undir fertugu líklegra til þess að nýta sér annan ferðamáta eins og strætó eða rafmagnshlaupahjól.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að keyra en landsbyggðarfólkið, en íbúar miðbæjarins nota þó bíla í mun minna mæli en aðrir borgarbúar.