Karla Barralaga Ocon, aðildarfélagi Eflingar, skrifar í skoðunargrein sinni á Vísi að hún sé þreytt á því að horfa upp á „skynsamlegar og nauðsynlegar ákvarðanir Sólveigar útmálaðar á bjagaðan hátt.“ Hún segir ákvarðanirnar þjóna hagsmunum Eflingarfélaga.
Hún segir augljóst að hlutirnir hafi ekki verið í lagi á skrifstofu Eflingar, Sólveig hafi fengið ofbeldishótun frá starfsmanni. Karla segir það ekki sæmandi hlutverki að sumir starfsmenn Eflingar hafi tekið opinskáa afstöðu gegn Sólveigu og stuðningsfólki hennar. Karla segir þetta trufla sig sem greiðandi félagsmann í Eflingu.
Hún segir breytingarnar innan skrifstofu Eflingar munu gera skrifstofuna að betri vinnustað, með betra skipulagi og skýrari vinnuskilyrðum.
Karla segist hrifin af þeirri hugmynd að hafa hámarkslaunabil milli hæstu og lægstu launa, þetta sé hugrökk ákvörðun og hún vonar að hennar vinnustaður taki þetta upp.
Varðandi viðbrögð leiðtoga annarra verkalýðshreyfinga segir Karla: „Það er ekki hlutverk leiðtoga í öðrum stéttarfélögum eða samböndum að fordæma lýðræðislegar ákvarðanir forystu stéttarfélagsins míns.“