Karl Wernersson, eigandi Lyfja og heilsu, stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi. Frá þessu greinir Stundin og byggir á Panama-skjölum.
Fram kemur hjá Stundinni að Karl Wernersson notaði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána peninga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal annars við tæplega þriggja milljarða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka.
Karl segir í samtali við Stundina að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hruninu. Panamaskjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrifaði milljarðs króna skuld móðurfélags lyfjaverslunarinnar Lyfja og heilsu á Íslandi, eftir því sem fram kemur í Stundinni.
Íslenska ríkið lagði Sjóvá til um 11,6 milljarða króna árið 2009 til að bjarga tryggingarfélaginu frá gjaldþroti. Þrot hefði haft í för með sér tilheyrandi tap fyrir viðskiptavini þess. \"Ástæðan fyrir tapi Sjóvár voru meðal annars lán til Milestone og eignarhaldsfélagsins Vafnings, sem síðar var nefndur Földungur, upp á um 20 milljarða króna,\" segir í frétt Stundarinnar.