Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið 3,5 milljónir frá skattgreiðendum síðustu tíu mánuði ársins vegna aksturs. Hefur Ásmundur fengið 2,8 milljónir vegna aksturs á bílaleigubíl og þá hefur hann fengið tæplega 630 þúsund vegna eldsneytiskostnaðar. Frá því að Ásmundur settist á þing hefur hann ekið fyrir 351 þúsund krónur að meðaltali á mánuði.
Í eitt skipti þurfti Ásmundur að endurgreiða Alþingi 178 þúsund fyrir akstur árið 2017 en þá var hann að rúnta með tökufólk frá sjónvarpsstöðinni ÍNN. Rukkaði Ásmundur fyrir þann akstur þó það væri ekki hluti af starfi hans sem þingmaður.
Sjá einnig: Rukkaði fyrir að skutla tökufólki ÍNN
Ásmundur hefur verið harðlega gagnrýndur en hann á þó nokkra stuðningsmenn. Einn af þeim er Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri DV og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins. Karl segir á Facebook-síðu sinni að verið sé að „pönkast“ í Ásmundi. Karl segir:
„Ási er vissulega dýr, en engan þingmann þekki ég sem sinnir sínu kjördæmi betur. Það er mikilvægt hlutverk hvers þingmanns. Ef menn eru ósáttir með kostnaðinn, þá verður einfaldlega að breyta reglunum, en ekki pönkast á einstaka þingmönnum.
Sjá einnig: Þessir keyrðu mest á árinu
Bubbi Morthens tónlistarmaður tjáir sig á Facebook-síðu Karls og segir að Ásmundur sé dólgur sem hafi misnotað vald sitt: „Þetta er hneisa og í þokkabót hagar hann sér eins og dólgur. Virðing Alþingis hrakar út af mönnum eins og honum.“
Karl bætir við: „Það er mikilvægur hluti af vinnunni að sinna kjördæminu.“
Þá segir Bubbi á öðrum stað:
„Hann var afhjúpaður og nýtur engra virðingar og undirlægjuháttur manna sem verja svona er til skammar.“
Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi tjáir sig einnig á síðu Karls og segir Ásmund hafa misnotað aðstöðu sína. Jakob segir:
„Þetta er sérkennileg mótsögn, ein af mörgum, í málflutningi Sjálfstæðismanna: Þeir boða aðhald í ríkisrekstri, að vel sé farið með fé almennings. En það á ekki við um þá sjálfa. Þegar þeir eru gripnir með kámuga putta í kökukrúsinni þá snýst þetta allt um mjög þrönga túlkun á lagastaf. Er það siðlegt eða óforskömmuð og forhert tækifærismennska? Ég held að það fari vart á milli mála.“ Jakob bætir svo við að lokum:
„Okkur sem almenningi og kjósendum ber að veita þessum kónum aðhald og það gerum við ekki með einhverri meðvirkni eða sjúkri hollustu. Og undanbrögðum.“