Karl Ágúst Úlfsson leikari og umsjármaður sjónvarpsþáttarins Helgin á Hringbraut segist vera með hausinn fullan af hugmyndum að vonlausum fyrirtækjarekstri svo fremi hann fái ívilnun upp á nokkur hundruð milljónir króna frá blessaðri ríkisstjórninni - og vísar þar til ríkisaðstoðar við Matorku sem rataði oftar en einu sinni í fréttir liðinnar viku. Í kostulegum inngangsorðum sínum velti hann einnig fyrir sér sakaruppgjöf þeirri sem fjármálaráðherra væri að undirbúa helstu og kröftugustu skattsvikurum þjóðarinnar til handa; margir þeirra væru þegar farnir að taka saman pappíra svo þeir fengju almennilega uppgjöf - og aðrir, sem enn hefðu ekki svikið stórkarlalega undan skatti, væru farnir að huga að álitlegum svikum, enda á vísa vorkunn þar að róa. Og svo var það þingveislan, sem í huga leikarans góðkunna var meira svona þingpartí, eða kannski þingkósí, svo fáir hefðu mætt - en þar hefði þó forseti Íslands verið hrókur alls fagnar, reyndar eini hrókurinn innan um öll peðin.
Sjá má klippu af inngangsorðum Karls Ágústs hér neðar á forsíðunni á hringbraut.is, en gestir hans að þessu sinni voru leikarinn Gunnar Helgason og klerkurinn Jóna Hrönn Bolladóttir sem til samans fóru á kostum í greiningu sinni á atburðum síðustu viku.