Karl Gauti: „Hrynur viðstöðulaust úr vörn þeirra sem vilja byggja á endurtalningunni“

Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi Miðflokksins, gagnrýnir harðlega að hægt sé að treysta endurtalningu í Norðvesturkjördæmi nú þegar það er komið í ljós að engar eftirlitsmyndavélar séu í salnum þar sem atkvæðin voru geymd.

Líkt og fram hefur komið voru atkvæðin endurtalin daginn eftir kosningar, í millitíðinni voru atkvæðin geymd inn í sal á hóteli á Vesturlandi. Þau voru ekki innsigluð og því er mikill vafi á því hvort einhver hafi getað átt við atkvæðin á milli talninga. Myndavél er í forsalnum og hefur verið sagt að upptökur sýni að enginn hafi farið inn í salinn. Síðan hafa komið í ljós myndir af Instagram sem sýna atkvæðin, óvissa er um hvort sú mynd hafi verið tekin eftir að salnum var lokað fyrir nóttina.

„Auðvitað er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á að leggja til grundvallar tölur sem fengnar eru með marklausri endurtalningu,“ segir Karl Gauti á Facebook, en hann er einn þingmannanna sem datt út af þingi við endurtalninguna.

„Það hrynur viðstöðulaust úr vörn þeirra sem vilja byggja á endurtalningunni.“ Þá séu fleiri inngangar að salnum en forsalurinn með myndavélinni.

Hann telur svo upp þrjú atriði:

„1) Geymsla atkvæða á víð og dreif í hótelsal með 4-5 inngöngum, þar sem einhverjir voru ólæstir og lyklar að öðrum í höndum starfsfólks. Engin innsigli voru á gögnunum. Í bága við skýr ákvæði kosningalaga.

2) Umboðsmenn framboða ekki viðstaddir og reyndar virðist þeim ekki hafa verið boðið að koma. Í bága við kosningalög.

3) Úrskurðir (allt að 60-70) á atkvæðum sem breyttust, en í 103 grein kosningalaga er kveðið á um að atkvæði eigi að úrskurða jafnóðum í talningu til að koma í veg fyrir óþægilega aðstöðu. Allt gert án umboðsmanna. Skýrt brot á kosningalögum. Allur þessi ferill á sér stað eftir að kjörstjórn að viðstöddum umboðsmönnum hafði athugasemdalaust gefið út lokatölur rétt fyrir kl. 08 um morguninn.“