Karl gauti fékk 1,6 milljónir í húsnæðisstyrk á árinu en býr í kópavogi: fær 15,5 milljónir frá skattgreiðendum þetta árið

Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins fékk rúmlega 1,6 milljónir í húsnæðis- og dvalarkostnað á árinu 2019. Þar sem Karl Gauti bauð fram, upphaflega fyrir Flokk fólksins, í Suðurkjördæmi er hann skráður sem landsbyggðarþingmaður og fær því fastar greiðslur upp á 1,6 milljónir í húsnæðis- og dvalarkostnað á ári, líkt og Steingrímur J. Sigfússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Þessa upphæð fær Karl Gauti þrátt fyrir að vera búsettur í Kópavogi. Karl Gauti er einnig með fastan ferðakostnað í kjördæmi upp á 360 þúsund á ári. Þá hefur Karl Gauti fengið 400 þúsund í starfskostnað það sem af er þessu ári.

Karl Gauti er með 1.101.194 í laun á mánuði eða eða 13,2 milljónir yfir árið. Við það bætist ferðakostnaður upp á 360 þúsund og svo starfskostnaður sem er eins og áður segir 400 þúsund sem er þá rétt tæpar 14 milljónir.

Karl Gauti ferðaðist á eigin bíl fyrir 452,650 krónur og flaug innan lands fyrir 94.645.

Ofan á þetta bætist síðan 1,6 milljón í húsnæðisstyrk þrátt fyrir að búa í Kópavogi. Karl Gauti fær því frá skattgreiðendum 15,5 milljónir þetta árið.