Karl garðasson styður sigurð inga

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, mun styðja Sigurð Inga Jóhannsson í baráttu hans við Sigmund Davíð Gunnlaugsson um formannsstólinn í Framsóknarflokki.

Karl skrifar á Facebook: „Ég mun styðja Sigurð Inga Jóhannsson í formannskjöri Framsóknarflokksins um næstu helgi. Hann hefur staðið sig afar vel sem forsætisráðherra við erfiðar aðstæður og áunnið sér virðingu og lof, bæði innan flokks og utan. Ég mun fara betur yfir ástæður stuðnings míns í bloggfærslu á morgun.“