Karl: fyrr en síðar verður bjarni að skríða fram

Innleiðing þriðja orkupakkans virðist ætla að reynast ríkisstjórnarflokkunum erfitt mál. Karl Garðarsson og Jón Kaldal, hinir þaulreyndu fjölmiðlamenn, voru gestir Sigmundar Ernis í ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á þriðjudag, þar sem þeir ræddu málið í þaula.

Karl nefnir Sjálfstæðisflokkinn sem dæmi. „Sjálfstæðisflokkurinn á í miklum erfiðleikum vegna þessa máls. Það sýnir sig reyndar ekki í þessari nýjustu könnun sem við erum að horfa á núna en það mun koma örugglega í ljós. Það er líka athyglisvert að þau tefla fram Guðlaugi Þór og Þórdísi. Þau eru eins og þau séu einu forsvarsmenn flokksins í þessu máli, en ég held að grasrótin í Sjálfstæðisflokknum, hún á eftir að segja sitt síðasta orð í þessu máli og þetta gæti orðið gríðarlega erfitt fyrir ráðherra flokksins þegar kemur að næstu kosningum.“

Aðspurður um hvort um sé að ræða eitt erfiðasta mál sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi staðið frammi fyrir sem formaður segir Karl: „Alveg örugglega og Bjarni hefur aðeins haldið sig til hlés í þessu máli, eins og hann getur, sem er viturlegt af honum í augnablikinu. En það verður varla mjög lengi.“ Hann telur að Bjarni muni á næstu dögum taka undir með Guðlaugi Þór og Þórdís Kolbrúnu þar sem hann hafi sjálfur lagt þessa línu sem þau hafi fylgt. „Það segir sig sjálft að hann mun fylgja þeirri línu og fyrr en síðar verður hann að skríða fram,“ segir Karl.

Jón segir flokkinn sjálfan hafa komið sér í öngstræti. „Þetta er náttúrulega ákveðið sjálfskaparvíti hjá flokknum. Þeir hafa núna svo lengi, út af andstöðunni við Evrópusambandið, verið í sinni fullveldisumræðu um meint framsal á fullveldi og tortryggni í garð alþjóðasamstarfs og þetta er mál sem er svolítið brýnt fyrir flokkinn til að takast á við núna. Það er líka stórmál, núna er þessi flokkur í ríkisstjórn, og kjósendur og aðrir reikna með því að flokkar í ríkisstjórn, þeir stjórni. Þeir geta ekki boðið upp á eins konar borgarastríð innan eigin raða á meðan þeir eru að stýra landinu. Þeir þurfa að stýra og leggja línurnar. Þess vegna segi ég að Bjarni hlýtur á einhverjum tímapunkti að þurfa að stíga fram sem skipstjóri í þessum flokki og segja: „Við erum að fara þarna og þetta er ástæðan,“ og hann þarf svolítið að skera á þann hnút.

„Davíð Oddsson gerði það á sínum tíma í EES samningnum,“ heldur Jón áfram. „Þar varð þetta „fullveldisframsal“, sem er rætt um núna, það bara varð fyrir tæplega þrjátíu árum síðan. Við vitum alveg hvaða velferð sá samningur hefur fært okkur. Þess vegna veltur, finnst mér núna, á framtíð Sjálfstæðisflokksins hvar þeir ætla að koma þessu fyrir. Ætla þeir að vera í þessu þjóðernislega íhaldi sem þeir hafa verið að gefa svolítið mikið undir fótinn undanfarin ár eða ætla þeir að taka af skarið?“ segir hann og telur að Sjálfstæðisflokkurinn myndi laskast við það að berjast eingöngu við Miðflokkinn um þjóðernislega íhaldið, því það sé ekki nógu stór kjósendahópur til þess að berjast um.

Aðspurður um hvort Bjarni muni leyfa einhverjum þingmanna sinna að sitja hjá segir Karl:  „Ég er alveg viss um að einhverjir innan flokksins fái heimild til að sitja hjá eða verði bara fjarverandi. Það er nú kannski líklegra að það sé eitthvað svoleiðis í gangi. En það eru alveg hreinar línur að í öllum stjórnarflokkunum eru einhverjir sem munu ekki greiða atkvæði með þessum orkupakka. Það liggur alveg fyrir held ég, það er bara spurning hversu margir það eru, ég held það verði samþykki á endanum. Það er spurning hversu margir það eru sem mæta ekki í þingsal eða sitja hjá.“

Umræðurnar í heild sinni er að finna hér: