Karl ágúst nýr formaður

Karl Ágúst Úlfsson, leikari og höfundur hefur verið kjörinn nýr formaður Rithöfundasambands Íslands. Hann tekur við sem formaður af Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, sem gegnt hefur embættinu undanfarin fjögur ár.

Vilborg Davíðsdóttir var endurkjörin varaformaður og Bjarni Bjarnason endurkjörinn varamaður. Jón Gnarr var kjörinn meðstjórnandi í stað Hallgríms Helgasonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Auk þessara eru aðrir meðstjórnendur Margrét Tryggvadóttir og Vilhelm Anton Jónsson og varamaðurinn Sigurlín Bjarney Gísladóttir.

Pétur Gunnarsson var kjörinn heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands.

Rithöfundasamband Íslands er stéttarfélag rithöfunda. Rétt á félagsaðild eiga íslenskir rithöfundar og erlendir höfundar sem hafa fasta búsetu á Íslandi. Tilgangur félagsins er m.a. að gæta hagsmuna og réttar félagsmanna og að verja frelsi og heiður bókmenntanna. Stjórn Rithöfundasambands Íslands gerir samninga við útgefendur, leikhús, fjölmiðla, stofnanir og aðra aðila sem birta eða hafa afnot af verkum félagsmanna. Einnig setur stjórn félagsins einhliða gjaldskrár þar sem það á við.