Karl ágúst mættur til leiks á ný

Leikstjórinn og þáttastjórnandinn ástsæli, Karl Ágúst Úlfsson byrjar vetrarstarf sitt á Hringbraut í kvöld, en þáttur hans Helgin hefur verið færður yfir á laugardagskvöld klukkan 20:00 í breyttum og glæsilegum búningi.

Í vetur mun Karl Ágúst leggja meiri áherslu á að gera upp vikuna í íronískum stíl sínum sem hlífir engum frekar en fyrri daginn, en hann hefur fengið til liðs við sig hljómborðsleikarann og nafna sinn Karl Olgeirsson til að spila undir í þættinum sem gefur honum vissulega færi á að syngja gaman sitt grátt og geggjað. Og það gerist auðvitað í fyrsta þættinum þegar lagið Ferðalok, sem er að verða einkennislag stuðningsmanna íslenska karlalansdliðsins í fótobolta, öðlast nýjan texta að hætti íslenska óveðursins þar sem trampólín fuku veg allrar veraldar, eigendum sínum til stórkostlegrar furðu.

Gestir Karls Ágústs að þessu sinni eru Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Hjörtur Viðar Sigurðarson sem er einn strákanna sem leikur Billy Elliot í rómaðri uppfærslu Brogarleikhússins á þessu klassastykki sem gengið hefur fyrir fullu húsi svo misserum skiptir, en Halldóra fer þar reyndar líka á þvílíkum kostum að eftir hefur verið tekið um víðan völl. 

Og haldi menn að Karl Ágúst sé ekki jafn beittur í háði sínu og síðasta vetur skulu menn bara bíða og sjá, því eins og hann segir sjálfur; Íslendingar eru rétt búnir að jafna sig á Icesave að þeir fá yfir sig Icehot - já hvers á þjóðin að gjalda!

Helgin er frumsýnd í kvöld klukkan 20:00 og endursýnd klukkan 22:00 sama kvöld.

Horfðu á klippur úr þættinum hér: