Karl Ágúst Úlfsson gerði upp liðna viku af tærri snilld eins og hans er von og vísa í þætti sínum sem var frumsýndur á Hringbraut i gærkvöldi. Þetta var vikan sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson upplýsti um leyniskýrslur kröfuhafanna sem svo margar eru lymskulega dulbúnar sem fréttir.
Þetta er gert svo að almenningur átti sig á því hversu leynilegar þær eru. Karl segir Sigmund endilega vilja að þessar fréttir verði afhjúpaðar sem leyniskýrslur, en hefur sínar ástæður fyrir því að vilja að sálgreiningum kröfuhafanna á stjórnmálamönnum verði haldið leyndum áfram.
Sykurskatturinn hafði engin áhrif á sykurneyslu Íslendinga þó það kostaði okkur milljarði meira! Þá bendir Karl Ágúst á ótvíræða kosti þess að byggja nýtt sjúkrahús í Efstaleiti þar sem læknaþættir eru eitt vinsælasta sjónvarpsefni sem er framleitt og því hægt að sameina skurðstofur, fæðingarstofur og stúdíó.
Og þetta var vikan sem einn af þingmönnum Framsóknarflokksins mætti í jakkafötum úr gardínuefni á flokksþingið um síðustu helgi. Að mati Karls Ágústs ætti þetta að vera einkennisbúningur Framsóknarflokksins, þar sem þetta sé afskaplega viðeigandi klæðnaður fyrir flokk þar sem fljótlega verður dregið fyrir alla glugga - og þar sem allt sem skiptir máli fer fram á bak við tjöldin.
Ekki missa af þætti Karls Ágústs sem hægt er að nálgast í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og auk þess niðurklipptan á klippum sömu síðu. Gestir hans að þessu sinni voru Birgitta Birgisdóttir leikkona og Sævar Sigurgeirsson liðsmaður Ljótu hálfvitanna.