Kári vill handjárna næstu stjórn

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kveðst ætla með undirskriftasöfnun að handjárna næstu ríkisstjórn til þess að hún veiti meira fé til heilbrigðismála, svo nemi 11% af þjóðarframleiðslu.
 
Þetta kom fram í máli læknisins í Morgunútvarpinu í morgun, en þar lýsti hann yfir því að fullreynt væri að láta stjórnvöld annast heilbrigðiskerfið.
 

Kári birti grein í Féttablaðinu 10. desember þar sem hann hótaði að safna 100.000 undirskriftum fólks sem lofaði að kjósa aldrei aftur ríkisstjórnarflokkana, ef fjárlagafrumvarpinu yrði ekki beytt. Sagði Kári að meira fé þyrfti að fara til Landspítalans. Í Morgunútvarpinu í morgun sagðist Kári vissulega stefna að því að safna undirskriftum, enda væri 1.250 milljóna króna aukaframlag til spítalans ekki nóg. 

\"Það sem gleður mig við þetta framlag er að það sýnir að stjórnvöld hafa þann sveigjanleika sem þarf til að bregðast við, að minnsta kosti að einhverju leyti, þrýstingi úr samfélaginu. Og þar sem þeim er ætlað að þjóna þessu samfélagi hlýtur það að teljast til kosta hjá þessum stjórnvöldum að þeir hafi brugðist við á síðustu stundu með því að bæta við 1.250 milljónum til Landspítalans. Hins ber að geta að þörfin er miklu meiri. Spítalinn verður að öllum líkindum ekki rekinn fyrir það fé sem honum er ætlað á næsta ári,“ sagði Kári á RÚV í morgun.