Kári Stefánsson kveðst vonbsvikinn yfir því hvernig Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur í undirskriftasöfnun hans fyrir betra heilbrigðiskerfi, nær væri að hann fagnaði átakinu en fýldi grön.
\"Kæri Sigmundur,\" skrifar Kári á fésbók sína í gærkvöld, \"þú ert forsætisráðherra og heilbrigðiskerfi landsins er í rusli. Þú berð svo sannarlega ekki ábyrgð á öllu ruslinu en þú berð ábyrgð á því hvernig við bregðumst við því núna. Til þess að geta brugðist við því á myndarlegan hátt þarftu stuðning fólksins í landinu vegna þess að það sem er látið í heilbrigðiskerfið verður ekki notað annars staðar. Þess vegna hljóta það að teljast mistök af þinni hálfu að taka ekki undirskriftarsöfnuninni opnum örmum í stað þess að agnúast út í hana. “
Deilurnar um undirskriftasöfnun þar sem skorað er á stjórnvöld að verja 11 prósent af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála hafa undið upp á sig. Þung orð hafa fallið í hita leiksins. N vill Kári vilja bera klæði á vopnin: \"Ég er líka á því að það hafi verið mistök af minni hálfu að fara að munnhöggvast við þig og draga með því athyglina frá því sem máli skiptir sem er að heilbrigðiskerfi landsins er í rusli og við þurfum að veita miklu meira fé til þess. Það vantar betri tæki og ný, það vantar meira af nýjum og betri lyfjum, það vantar fleira fagfólk og betra húsnæði\"
Kári hefur blíðkast - og talar hlýlega til ráðherra: \"Ég held að við séum örugglega sammála um þetta. Þess vegna bendi ég þér á þann möguleika að skrifa undir og fá síðan tækifæri til þess að verða sá forsætisráðherra sem endurreisir heilbrigðiskerfi landsins. Sameiginleg velferð þjóðarinnar allrar hlýtur að sitja í fyrirrúmi.\"