Kári: verð kallaður lýðskrumari

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar seg­ir und­ir­skrift­ar­söfn­un sína fyr­ir end­ur­reisn heil­brigðis­kerf­is­ins ekki vera setta til höfðs rík­is­stjórn­inni þar sem hún ber lít­inn hluta ábyrgðar á ástand­inu.

Þetta er haft eftir honum á fréttavefnum mbl.is í gær, en þar segist hann allt eins eiga von á því að vald­haf­ar kalli hann lýðskrum­ara; áhugavert yrði að heyra það úr þeirra munni og sú tilraun yrði í öllu falli at­hygli­verð. 

Sjá má viðtalið við hann inn á mbl.is, en söfnun und­ir­skrift­anna  hófst í gærdag og höfðu þúsundir safn­ast strax á fyrsta degi. Kári stefnir að því að safna 100 þúsund undirskiftum fólks sem vill setja heilbrigðismálin í forgang og hlúa að innviðum þeirra eins og best verður kosið.