Kári vænir ríkisstjórn um hugleysi

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar lýsir miklum vonbrigðum með framgöngu forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar við uppgjör á slitabúum bankanna.

Kári lauk lofsorði á forystumenn ríkisstjórnarflokkanna fyrir dugnað og hæfileika, en í umfjöllun um fyrirhugaðar greiðslur í ríkissjóð úr slitabúum bankanna sagði hann að framganga þeirra einkenndist af hugleysi. Sæist þetta skýrast af því að þær fjárhæðir sem nú væru ræddar í þessu sambandi væru mun lægri en þær fjárhæðir sem áður hafa verið nefndar og samrýmdust betur því tjóni sem bankarnir leiddu yfir þjóðina.

Hægt er að skoða samtal Kára og Ólafanna hér á hringbraut.is, svo og í styttri klippum á vefnum.