\"Það er enginn Guð, það er bara DNA,“ er haft eftir Kára Stefánssyni, forstjóra íslenskrar erfðagreiningar í úttek fréttaveitunnar NBC í gærdag umfjöllun um Íslendinga og hið undarlega langlífi þeirra.
Í fréttinni er rætt við Stefán Þorleifsson, 99 ára gamlan mann frá Neskaupsstað sem fær sér sundsprett hvern einasta morgun, en því næst er hugað að viðhorfum vísindamannsins til langlífis: \"Það er ýmislegt sem við erum fær um að gera,\" segir Kári þar \"en við verðum að vera meðvituð um að við erum alltaf að berjast við okkur sjálf, til þess að koma í veg fyrir að erfðafræðileg örlög okkar verði að raunveruleika.“
Kára finnst ólíklegt að umrætt langlífi stafi af miklu öðru en harðgeru erfðamynstri Íslendinga - umhverfið eða mataræðið komi lítið sem ekkert við sögu. Deoxýríbósakjarnsýrur skipti t.d. talsvert meira máli en frjáls vilji: \"Það er líklega vegna sögu erfðaefnis Íslendinga [sem þeir eru langlífir],“ segir Kári og bætir því við að hann efist um að það hafi nokkuð með hreint loft, ferskt vatn eða fiskinn sem við borðum að gera: \"Fremur held ég að það hafi allt að gera með það hvaða fólk ákveður að eignast börn.“