Kári Stefánsson er uppgötvanafíkill: „Þetta var dópið beint í æð“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að ekkert annað hafi búið að baki skimunar fyrirtækisins en löngun til að hemja faraldurinn. Hann telur sig knúinn til að koma því á framfæri eftir umræðu sem hefur átt sér stað í miðlum undanfarið. Hann birti færslu um málið á Facebook í dag..

„Það sama á við um skimunina eftir mótefnum gegn veirunni. ÍE og eigandi hennar Amgen hafa aldrei haft uppi áætlanir um að búa til úr þessari vinnu söluvöru til þess hafa af fjárhagslegan ávinning,“ segir hann.

„Þegar ég hafði á sínum tíma samband við stjórnendur Amgen og sagði að ég vildi hefja skimun var svarið sem ég fékk: „Í guðannabænum gerðu það og bjóddu stjórnvöldum alla þá hjálp sem þú getur veitt.“ Það vill svo til að Covid-19 faraldurinn hefur laðað fram það besta í svo mörgum og meira að segja harðsvíruðum kapítalistum eins og þeim sem stjórna lyfjaiðnaðinum,“ heldur hann áfram.

Hann segir þá að stærstu lyfjafyrirtæki heims hafi til að mynda heitið því að gera sitt besta til að búa til bóluefni og lyf við veirunni eins fljótt og hægt væri og dreifa þeim um allan heim án þess að græða á því. „Þetta er einstakt og fallegt og svona á heimurinn að vera.“

Kári segir þó að vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafi fengið nokkuð fyrir sinn snúð: „Ég viðurkenni fúslega að þótt ekkert annað hafi búið að baki skimun ÍE en löngun til þess að leggja að mörkum til þess að hemja faraldurinn og á þann máta gera líf okkar allra betra fórum við vísindamenn hjá ÍE fljótt að fá mjög mikið fyrir okkar snúð. Það sem við fengum fyrir snúðinn var sú gleði sem fylgir því að uppgötva eitthvað nýtt um eðli sjúkdóma og heilsu.“

„Við erum uppgötvanafíklar og nýr sjúkdómur sem ekkert er vitað um er hvalreki fyrir þá fíkn. Þetta var dópið beint í æð. Sem sagt við skimuðum ekki af góðmennsku eða fórnfýsi heldur til þess að hlúa að því samfélagi sem við búum og þannig að okkur sjálfum og síðan gerðum við það líka til þess að komast í þá vímu sem við lifum fyrir,“ segir hann loks.