Kári stefánsson syrgir örn: „óendanlega þakklátur fyrir veisluna sem hann kom fyrir í farangrinum mínum“

\"\"Örn Helgason prófessor í eðlisfræði er látinn, 81 árs að aldri. Morgunblaðið greinir frá því að Örn hafi látist á líknardeild Landspítalans þann 19. ágúst síðastliðinn. Hann fæddist í Kaupmannahöfn þann 17. mars 1938. Eftirlifandi eiginkona hans er Bjarney Kristjánsdóttir og eignuðust þau þrjá syni. Örn hafði áhrif á marga og í þeim hópi er Kári Stefánsson, sem lítur á Örn sem einn sinn helsta læriföður.

Örn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Reykjavík árið 1958 og mag.scien-prófi í eðlisfræði, með kjarneðlisfræði sem sérsvið, frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1965. Fyrstu árin að prófi loknu starfaði hann við Eðlisvísindastofnun Háskóla Íslands og kenndi við MR. Þótti hann afar góður kennari.

Örn varð dósent við HÍ árið 1969 og prófessor árið 1987. Örn gegndi auk þess mörgum og mikilvægum stjórnunarstörfum fyrir háskólann og stofnanir hans. Þá sinnti hann stjórnunarverkefnum sem tengjast rannsóknum bæði heima og erlendis. Rannsóknir sínar stundaði Örn við Raunvísindastofnun HÍ (áður Eðlisvísindastofnun) og átti farsælan feril sem vísindamaður.

Frumkvöðull raunvísinda á Íslandi

Raunvísindastofnun HÍ sendir aðstandendum Arnar samúðarkveðju. Í kveðjunni segir meðal annars:

„Þeim fækkar ört frumkvöðlum raunvísinda á Íslandi sem unnu við Eðlisvísindastofnun Háskólans, forvera Raunvísindastofnunar. Örn Helgason var einn þeirra.

Stjórn og starfsmenn Raunvísindastofnunar Háskólans þakka Erni Helgasyni langa og farsæla samfylgd og minnast hans með hlýju og þakklæti.“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er sömuleiðis á meðal þeirra fjölmörgu sem minnast Arnar í Morgunblaðinu í dag og segir hann sinn mesta lærifaðir:

„Ég hitti Örn Helgason í fyrsta skiptið árið 1966. Ég var að hefja nám við Menntaskólann í Reykjavík og hann kenndi okkur efnafræði eftir nýrri bók sem hann sagði að væri byltingarkennd. Síðan leiddi hann bekkinn okkar í gegnum eðlisfræði í þrjú ár. Í þau tuttugu og sex ár sem ég var nemandi var hann sá lærifaðir sem hafði mest áhrif á mig og varanlegust.

Hann kenndi okkur og hvatti sem enginn annar og gerði mér í það minnsta ljóst að með vísindum megi ekki bara finna þekkingu heldur líka fegurð. Ég á skýrslurnar sem ég skrifaði eftir verklegar æfingar í eðlisfræði í sjötta bekk með athugasemdum Arnar sem enn ylja mér um hjartarætur. Ég er óendanlega þakklátur fyrir veisluna sem hann kom fyrir í farangrinum mínum. Hún hefur nært mig í meira en hálfa öld.