Kári: sigmundur davíð sekur um landráð?

Kári Stefánsson læknir og forstjóri ÍE segir í opnu bréfi til Sigmundar Davíðs í Morgunblaðinu í dag að tími sé kominn fyrir forsætisráðherra að segja af sér. Ef honum verði ekki gert að gera svo – þar sem vera kunni að Alþingi sé skipað “lúðulökum og lufsum” að nokkru leyti - ætti hann að stíga til hliðar af fúsum og frjálsum vilja.

Engin breyting virðist hafa orðið á því að þingmenn minnihlutans muni lýsa yfir vantrausti á Sigmund Davíð þegar þing kemur saman 4. apríl næstkomandi eftir páskaleyfi. Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði á facebook seint í gærkvöld að hans skoðun væri sú að forsætisráðherra væri “í rúst” eftir páskahelgina og vísar þá m.a. til þeirra skýringa sem Sigmundur Davíð nefndi í löngum pistli á eigin bloggsíðu en þykja ófullnægjandi vegna hins svokallaða Tortóla máls.

Málsvörnin er ótrúlega veik en tilraunir til að bæta hana og stýra umræðunni sýna örvæntinguna sem gripið hefur um sig í stjórnarráðinu. Æskilegast er að stjórnarandstaðan leggi sameiginlega fram vantrauststillögu og best að slíkt sé rætt þegar þing kemur aftur saman. Þessu máli er hvergi nærri lokið og á eftir að fylgja Sigmundi Davíð allan hans feril. Hvort vantraust er borið fram í þessari viku, eða hvort óskað er eftir því hvort þing sé kallað saman skiptir minna máli,” skrifaði Robert Marshall í umræðu um framtíð Sigmundar Davíðs í gærkvöld.

Kári Stefánsson segir í opna bréfinu í Mogganum í dag að 550 milljörðum krónaskeiki á þeirri fjárhæð sem kröfuhafar muni greiða íslenska ríkinu eftir að Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð hættu við útgönguskatt vegna föllnu bankanna. “Og nú kemur í ljós, Sigmundur Davíð, að þú ert í hópi kröfuhafanna sem bera 550 milljörðum meira úr býtum en stefnt var að á síðasta vori,” skrifar Kári Stefánsson sem fengið hefur tæplega 90.000 Íslendinga til að skrifa undir áskorun um að bæta heilbrigðiskerfið. Hagsmunaárekstri sé ekki hægt að skella á eiginkonu forsætisráðherra enda segi lög um innherja að hagsmunaárekstrar maka séu ígildi eigin hagsmuna. Dómgreindarbrestur Sigmundar Davíðs sé að óbreyttu á leið í sögubækurnar.

Þjóðarleiðtogi sem er að semja fyrir hönd þjóðar sinnar og hefur sem einstaklingur hagsmuna að gæta með þeim sem hann er að semja við og gegn þjóðinni er óhæfur til þess að sinna starfi sínu og ef hann heldur því leyndu má leiða að því rök að hann hafi orðið uppvís að landráðum.”

Kári skrifar margt fleira í löngu bréfi sínu og dregur m.a. líkindalínu milli máls Baldurs Guðlaugssonar ráðuneytisstjóra og Sigmundar Davíðs. Baldur var dæmdur í fangelsi fyrir að selja hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun.

Því ráðlegg ég þér að sýna auðmýkt og lítillæti og segja af þér til þess að koma í veg fyrir að þjóðin þurfi að eyða þeirri orku í enn eina innri baráttuna sem mætti annars nýta til uppbyggingar,” skrifar Kári í opnu bréfi sínu í Mogganum í dag.