Kári segir sdg fúlan út í allt og alla

Það vakti landsathygli þegar Sigmundur Davíð svaraði grein Kára Stefánssonar í Fréttablaðinu fyrir jól og hjólaði þar meðal annars í persónueiginleika Kára. Sigmundur Davíð kallaði Kára „toppara“ og gaf til kynna að landsþekkt væri hve Kári væri hrokafullur á mannamótum, vissi allt best.

Áfram halda persónuágjafir en í millitíðinni hefur Kári hrundið af stað söfnun undirskrifta um átak í þágu heilbrigðismála. Eftir að Sigmundur Davíð gerði lítið úr tölfræðikunnátu Kára í status á eigin fésbók í gær, svaraði Kári í gær.

„Forsætisráðherra tjáði sig um undirskriftarsöfnunina á fésbókarsíðu sinni í gærmorgun og greip til þess ráðs að reyna að vera skemmtilegur á hennar kostnað. Ekki er sú aðferð mér framandleg og hef ég fallið fyrir henni einu sinni eða tvisvar á ævi minni. Og hvernig tókst svo forsætisráðherra til? Það er með mælikvarða á skemmtilegheit eins og á hundraðshluta af vergri landsframleiðslu að hann er afstæður og svo markast hann af því hversu skemmtilegir menn eru almennt. Upp á síðkastið er forsætisráðherra búinn að vera svo fýldur út í allt og alla og þá sérstaklega þjóðina sem hann á að stjórna, að það væri dónaskapur við roðið að segja að hann sé búinn að vera eins og það, snúið í hundskjapti. Það var því ekki við miklu að búast og það fengum við, dapurlegan pistil sem var þeim mun dapurlegri sem hann átti að vera fyndinn,“ skrifar Kári með beittri egg skurðarhnífsins.

Hann heldur áfram:
„Forsætisráðherra heldur því fram að það sé vafasamt að við eyrnamerkjum ákveðinn hundraðshluta af landsframleiðslu til heilbrigðismála. Ég og í það minnsta aðrir 47500 Íslendingar eru honum ósammála. Okkur finnst eðlilegt að nota ákveðinn hundraðshluta þess sem aflast til þess að sinna þeim sem eru meiddir og sjúkir í okkar samfélagi og til þess að hlúa að heilsu þeirra sem enn eru hraustir. Það hefur gefist illa að skilja það eftir í höndum kjörinna fulltrúa á hverjum tíma fyrir sig að ákveða hversu mikið heilbrigðiskerfið fær af kökunni. Máli sínu til stuðnings nefnir forsætisráðherra Sierra Leone og önnur fátæk ríki sem leggja stærri hluta af sinni landsframleiðslu til heilbrigðismála en Ísland gerir, og so what? Það sýnir einfaldlega að sú fátæka þjóð sem býr í því stríðshrjáða landi sem við köllum Sierra Leone er reiðubúin til þess að fórna hlutfallslega meiru en við til þess að hlúa að þeim sem minna mega sín. Sigmundur Davíð, við eigum að taka þetta fólk okkur til fyrirmyndar hvað þetta snertir í stað þess að tala um þau af lítilsvirðingu.“