Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi enga þekkingu, reynslu eða getu til þess að meðhöndla fíknisjúkdóma og verði því að leita til annarra um ráð.
Þetta kemur fram í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun og á facebook-síðu hans.
Í hádegisfréttunum RÚV á sunnudaginn sagði Svandís auðljóst að bregðast þyrfti við löngum biðlista á Vogi. Yfirlæknir þar segir biðlistann aldrei hafa verið lengri. „Mér finnst skipta miklu máli að það sé skýrt hvað biðlistar eru og hvað þeir í raun og veru standa fyrir þannig að það sé einhver sameiginlegur skilningur á því hvað þarf að uppfylla til þess að vera á biðlista. Það er ekki svo í dag, þannig að við þurfum líka að skoða það,“ sagði hún.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-11-06-kari-segir-heilbrigdisradherra-tala-til-saa-med-hroka/