„Það felst ekkert réttlæti í því að laun þeirra sem hafa mikla menntun séu hærri en þeirra sem hafa litla menntun. Tilvist manna í skóla er sjaldan merkilegri en tilvist manna utan skóla og reynsla sem menn öðlast í skóla er sjaldan mikilvægari en sú sem fæst utan skóla.“
Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar á Pírataspjallinu á Facebook. Kári heldur áfram:
„Hversu mikla menntun menn hljóta er í beinu hlutfalli við efnahag og menntun foreldra þeirra. Laun ættu að markast af því hvað menn leggja að mörkum í starfi þeirra, ekki hvað menn lögðu að mörkum sem nemendur í skóla.
Ein aðferð til þess að takast á við þetta væri að greiða nemendum lágmarkslaun meðan þeir eru í háskóla og hætta síðan algjörlega að tengja laun við menntun heldur eingöngu við ábyrgð og afköst.“