Kári: Legg það til að þú sért skikkuð til þess að vinna eina viku á Vogi og anda að þér hyldjúpri angist

„Ég ætla að leggja það til við for­sætis­ráð­herra að refsing þín fyrir þessar á­ætlanir Ás­laug Arna verði sú að þú sért skikkuð til þess að vinna eina viku á Vogi, sitja þar fundi og anda að þér angistinni hyldjúpu sem fylgir þeim sem eru að takast á við al­var­legan alkó­hól­isma og aðra fíkni­sjúk­dóma.“

„Ás­laug Arna það eru ein af for­réttindum okkar Ís­lendinga að hafa dóms­mála­ráð­herra sem er 29 ára kona. Það er kýr­skýrt að það þarf sér­stakan ein­stak­ling fyrir mannkosta sakir til þess að komast alla leið í þann stól fyrir þrí­tugt og vera í þokka­bót af því kyninu sem er sí­fellt verið að svindla á.“

Þetta segir Kári Stefánsson í opnu bréfi til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þar gagnrýni Kári Áslaugu harðlega vegna frumvarps ráðherrans um leyfi á sölu áfengis í netverslanir. Kári segir að línulegt samband sé á milli aðgengis að áfengi og neyslu þess. Því auðveldara sem aðgengið er, því meiri verður neyslan og þá enn fleir vandamál sem koma upp í samfélaginu.

„Ég held til dæmis að það séu mjög al­var­leg mis­tök af dóms­mála­ráð­herra að leggjast í víking til þess að reyna að auka að­gengi að á­fengi í landinu.“

Þá bendir Kári á að ofbeldisglæpi, umferðarslys og heimilisofbeldi megi oft rekja til áfengisneyslu og Áslaug Arna sé að auka dreifingu á skaðvaldi.

„Þú ert svo ung að þú hefur sjálf­sagt ekki orðið vitni að því hvernig á­fengi hefur til­hneigingu til þess að leysa upp fjöl­skyldur og skilja börn eftir lömuð af sorg af því þau hafa ekki hug­mynd um hvað er að gerast,“ segir Kári og bætir við:

„Í stað þess að gegna skyldum þínum hyggstu nýta þér em­bættið sem fylgja þessar skyldur til þess að auka líkur á al­var­legum um­ferðar­slysum, of­beldis­glæpum og heimilis­of­beldi. Þetta eru mis­tök sem ættu að flokkast sem al­var­leg em­bættis­af­glöp, nema þetta sé ein­fald­lega glæpur. Það sam­rýmist engan vegin em­bætti dóms­mála­ráð­herra að leggja fram frum­vörp til laga sem auka líkur á því að lög séu brotin. Þess vegna verður þú annað hvort að hætta við frum­vörpin eða finna þér nýja vinnu.“

Þá segir Kári að lokum:

„Ég ætla að leggja það til við for­sætis­ráð­herra að refsing þín fyrir þessar á­ætlanir Ás­laug Arna verði sú að þú sért skikkuð til þess að vinna eina viku á Vogi, sitja þar fundi og anda að þér angistinni hyldjúpu sem fylgir þeim sem eru að takast á við al­var­legan alkó­hól­isma og aðra fíkni­sjúk­dóma.“