Tekjublað Frjálsrar verslunar birtir lista yfir skattskyldar launatekjur 3,725 Íslendinga eins og þær voru á síðasta ári. Mestar launatekjur forstjóra og stjornenda á mánuði höfðu eftirtaldir: Kári Stefánsson 29,1 m.kr., Árni Harðarson lögfræðingur og forstjóri Salt Investments 22,1 m.kr., Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri hjá Samherja 20,1 m.kr., Patrick Sulem hjá Íslenskri erfðagreiningu 17 m.kr., Óskar Borg hjá Alcoa Evrópu, 10, 3 m.kr., Hákon Guðbjartsson hjá Íslenskri erfðagreiningu 10,1 m.kr. á mánuði.
Aðrir starfandi stjórnendur náðu ekki 10 m.kr. launatekjum á mánuði. Hins vegar voru þrír fyrrverandi forstjórar með meira en 10 m.kr. að meðaltali á mánuði árið 2014 vegna starfslokasamninga sem þeir fengu þá uppgerða og greiddu tekjuskatta af. Það voru Jón Guðmann Pétursson fyrrverandi forstjóri Hampiðjunnar sem var með 24,5 m.kr. á mánuði, Halldór Eyjólfsson hjá 66 norður með 10,9 m.kr. og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir fyrrum forstjóri Actavis á Íslandi 10,1 m.kr. á mánuði.