Kári iðrast: ég er trúaður, kannski ekki!

\"Það er stundum vandlifað í þessum heimi hvort sem hann var af Guði skaptur eða varð bara til af sjálfum sér. Það er sérstaklega áþreifanlegt hjá þeim sem af klaufaskap sínum eða athyglissýki (eins og ég) koma sér milli tannanna á fjölmiðlum þessa lands sem eru agalausar skepnur og mannýgar.\"

Þetta skrifar doktor Kári Stefánsson, fullur iðrunar í dag, eftir að hafa orðið fyrir því um daginn að veita bandaríska fjölmiðlarisanum NBC viðtal um langlífi Íslendinga: \"Í því viðtali sagði ég að allt líf á jörðu ætti rætur sínar í DNA og nær allur fjölbreytileiki mannsins ætti rætur í fjölbreytileika í röðum níturbasa í því hinu sama erfðaefni. Ég sagði einnig að vegna þess að heilinn sé líffæri sem er búið til af upplýsingum í erfðaefninu og vegna þess að starfsemi heilans eigi rætur sínar í byggingu hans sé sá möguleiki fyrir hendi að við gætum erft hugsanir og alls konar afstöðu til tilverunnar,\" og hér kemur svo iðrunin: \"Ég klikkti síðan út með því að segja að þess vegna mætti leiða að því rök að það væri enginn frjáls vilji, enginn Guð heldur bara DNA,\" skrifar Kári í dag.

Hann segir fjölmiðla hafa gripið þessa sendingu af himnum ofan og flutt fréttir af viðtalinu sem mátti ekki lesa öðru vísi en svo að þarna hefði Kári Stefánsson opinberað að hann væri trúlaus villimaður. Og fréttir þessar hafi orðið enn einn kapítulinn í sögunni sem þeir séu að skrifa um vonda karlinn sem hafi meðal annars sannfært í það minnsta 78 þúsund Íslendinga um að það þurfi að setja mikið nýtt fé í heilbrigðiskerfi þeirra.

Hann vilji af þessu tilefni árétta eftirfarandi: \"Ég er vísindamaður sem vinnur að því að sækja nýjan skilning á því hvernig mannlegur fjölbreytileiki verður til. Í þeirri viðleitni vinn ég með DNA sem er sameind sem allt líf á jörðu á rætur sínar í. Þetta líf hefur orðið til við slembibreytingar (og einnig breytingar sem eru kannski ekki slembibreytingar) í röðum níturbasa í DNA og síðan vali á þeim eiginleikum sem af þeim kvikna sem leiða til þess að þeir sem þá hafa eignast fleiri afkvæmi en þeir sem gera það ekki. Nær kemst ég ekki upphafi lífs á jörðu eins og stendur en ég er handvissum að aðferðir vísindanna munu koma okkur lengra en líklega aldrei alla leið á byrjunarreit. Ég kann ekkert svar við spurningunni um það hvað hafi komið þessu öllu af stað. Var það Guð og hvað er þá guð? Er hann persóna sem situr uppi í himninum og horfir niður eða er hann bara kærleikur í öllu og öllum sem hefur einhvern vegin áhrif á framvindu mála. Ef ég ætti Guð væri hann af seinni gerðinni og svei mér ef ég aðhyllist ekki trúarsetningu Steingríms Thorsteinssonar þegar hann segir:

Trúðu á tvennt í heimi
tign sem æðsta ber
Guð í alheimsgeymi
Guð í sjálfum þér

Kannski það sé nóg til þess að ég teljist trúaður og kannski ekki.\".