Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að minna en 1% barna á Íslandi sé rangfeðrað, en því hefur verið haldið fram að rangfeðrun hér á landi sé mun algengari en svo.
Þessar niðurstöður, sagði hann að væru reistar á þremur kynslóðum Íslendinga á liðnum áratugum.
Þetta kom fram í fjörlegu samtali við Kára í þættinum Ólafarnir á Hringbraut í gærkvöld, en þar fjallaði hann meðal annars um uppruna Íslendinga sem blöndu af norrænum og keltneskum stofni. Hann sagði íslensku þjóðina hafa breyst meira á árunum frá landnámi en nágrannaþjóðirnar. Þar hefði gætt í mun meira mæli áhrifa fólksflutninga af ýmsu tagi, en áhrif breytinganna hér á landi mætti rekja til sambýlis þjóðarinnar við hið harðbýla land sitt.
Samtal Ólafanna við Kára má sjá í heild sinni hér á hringbraut.is, svo og í styttri klippum.