Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur verið kjörinn í bandarísku vísindaakademíuna, National Academy of Sciences (NAS), fyrstur Íslendinga. Um er að ræða einn mesta heiður sem vísindamanni getur hlotnast á ferli sínum og viðurkenningu á einstæðum vísindaferli. Tilkynnt var um kjörið á fimmtudag í síðustu viku.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu.
„Mannerfðafræðin getur gerbreytt skilningi okkar á sjúkdómum og enginn hefur gert meira til að stuðla að framförum þar en Kári Stefánsson,“ segir David Reese, varaforseti Amgen í Bandaríkjunum á sviði rannsókna og þróunar.
NAS er ein rótgrónasta og virtasta stofnun bandarísks vísindasamfélags, sett á fót í mars 1863 með lögum sem Abraham Lincoln, þáverandi forseti, undirritaði. Virkir félagar í NAS í Bandaríkjunum eru nú 2.347 og erlendir samstarfsfélagar eru 487. 190 félagar í akademíunni hafa hlotið Nóbelsverðlaun. Erlendir félagar NAS hafa ekki atkvæðisrétt á fundum akademíunnar.
Undir stjórn Kára hafa vísindamenn hjá Íslenskri erfðagreiningu fundið marga bæði sjaldgæfa og algenga erfðabreytileika sem hafa áhrif á sjúkdómsáhættu. Meðal helstu uppgötvana eru erfðabreytileikar sem tengjast Alzheimer, geðklofa, ýmsum krabbameinum og hjartasjúkdómum.
Í tilkynningunni segir að mestu muni þó um áhrif DeCODE genetics á aðferðafræði erfðavísinda um allan heim. Er greint frá því að velgengni fyrirtækisins byggi á því að afla upplýsinga um ættfræði og safna saman heilbrigðisupplýsingum um einstaklinga sem séu síðan raðgreindir eða arfgerðargreindir. Þessar upplýsingar séu síðan bornar saman við einstaka sjúklingahópa í vísindarannsóknum.
Jafnframt segir að aðferðafræði þessi hafi sætt gagnrýni til að byrja með en sé nú ríkjandi á helstu rannsóknarstofnunum í heiminum. „Það er auðvelt að gleyma því að þegar Kári Stefánsson stofnaði Decode Genetics þóttu þessar hugmyndir róttækar og ólíklegar til árangurs,“ segir Mark Daly, prófessor í erfðafræði við læknadeild Harvard háskóla og bætir við að Kári hafi í raun verið staddur á eyju í tvenns konar skilningi.