Kári frönskumælandi sérfræðingur í páfagaukum

Christophe D. Varner virðist vera annaðhvort tvífari Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, eða einhver huldumannanna sem hefur litist svo vel á íslenska vísindamanninn að hann þykist líta út eins og hann. Þá mætti einnig ætla að viðkomandi heiti alls ekki Christoðhe D. Varner en maður þessi er mjög virkur á „spurt og svarað“ síðunni Quora.

Berglind nokkur Jónsdóttir benti á þetta á Facebook síðu sinni í dag. Hún rakst á aðgang umrædds Christophes og sá þar að hann notaði mynd af Kára Stefánssyni sem prófílmynd.

„Elska allt (hollan lífsstíl, vísindi...). Ég er alltaf til í að tengjast á Facebook eða Linkedin,“ segir þykjustu-Kári á síðunni. Hann kveðst þá vera sérfræðingur í páfagaukum og tala reiprennandi frönsku. Hver veit svo nema það sé Kári sem sé þarna að villa á sér heimildir en styðjist enn við mynd af sjálfum sér á síðunni?