Deila reis milli Ríkisútvarpsins og Kára Stefánssonar vegna borgarafundar um heilbrigðismál sem sendur var út í gærkvöld. Kári átti hugmyndina að fundinum en vildi fá að tala í hópi með stjórnmálamönnum. Honum var ekki gefinn kostur á því en boðið að skipa hóp sérfræðinga. Því vildi Kári ekki una og varð ekkert af þátttöku hans í þeim fundi sem hann stóð sjálfur fyrir. Ein helsta ástæða fundarins er að Kári safnaði 85.000 undirskriftum vegna óánægju Íslendinga með heilbrigðismál.
„Þeir segja nei, við viljum ekki hafa þig á pallborði með stjórnmálamönnunum. Þá sagði ég ósköp einfaldlega við þá að þá tæki ég ekki þátt í þessu. Mér finnst það persónulega svolítið asnalegt þar sem ástæðan fyrir þessum fundi er undirskriftasöfnunin og það sem söfnunin beinist að er að setja þrýsting á stjórnmálamenn. Þarna er RÚV að hunsa þá staðreynd að beint lýðræði er orðið eða er að verða mikið afl, ekki aðeins í stjórnmálum á Íslandi heldur um allan heim,\" sagði Kári í viðtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt svörum Rúv vegna þessa er fundurinn ekki \"pólitísk uppákoma\" og því var sú leið farin sem styggði Kára Stefánsson.