Íslenskt samfélag er ekki að kikna þessa dagana vegna umburðarlyndis fyrir auðkýfingum og ber að lofa Guð fyrir það.
Þetta segir Kári Stefánsson læknir í grein í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir að efnalegt bil manna á millum sé óþolandi og ræðir aflandsmál og brotthvarf Sigmundar Davíðs.
Þá víkur Kári sögu að forsetakosningum og vill allt upp á borð um fjárhag Ólafs Ragnars Grímssonar og eignir hans og fjölskyldu, jafnt innan sem utan landsteina. Það muni ekki þýða fyrir hann að ætla að greina milli eigin eigna og Dorritar, Sigmundur Davíð hafi ekki komist upp með það.
\"Það er líka mikilvægt að hann [ÓRG] útskýri fyrir þjóðinni hvers vegna sú ákvörðun var tekin að greiða ekki opinber gjöld á Íslandi af þeim eignum sem þau hjón eiga í útlöndum. Þær raddir eru nefnilega háværar sem halda því fram að hún hafi ekki verið tekin með hagsmuni þjóðarinnar í huga heldur hagsmuni Ólafs Ragnars og konu hans. Það hlýtur að teljast grábölvað að menn hafi það á tilfinningunni að forseti lýðveldisins sé að reyna að koma sér undan því að greiða keisaranum það sem keisarans er.\"
Gagnsæi sé \"rúllugjaldið\" sem næsti forseti Íslands þurfi að greiða.