Kapítalismi spilavítanna aftur á kreik

\"Arion banki og nýi bankinn, Kvika, sem til varð úr MP banka og Straumi, eru saman að innleiða spílavítiskapítalismann á nýjan leik á Íslandi. Fyrsta augljósa dæmið er útboð Arion á Símanum.\"

Þetta skrifar Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingariunnar á fésbókarsíðu sína í dag og virðist telja augljóst hvað réð viðskiptunum atarna: \"Þar hyglaði Arion sérvöldum viðskiptavinum og útvöldum starfsmönnum með því að leyfa þeim að kaupa hluti í Símanum á lægri gengi en útboðsgengið var. Þannig fengu gæðingar á silfurfati 720 milljónir. Þetta eru fullkomlega óeðlilegir viðskiptahættir,\" skrifar Össur en Guðlaugur Þór Þórðardóttir, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur einnig gagnrýnt þennan viðskiptagjörning og kallað eftir útskýringum á honum innan nefnda Alþingis.

\"Þarna er verið að innleiða á nýjan leik svipaða viðskiptahætti og áttu stóran þátt í hruni föllnu bankanna,\" skrifar Össur og bætir við: \"Þegar hrunadansinn stóð sem hæst völdu bankarnir út fjárfestahópa sem fengu lán úr bönkunum gegn veði í hlutabréfum. Bankinn fjárfesti svo með þeim og þeir með bankanum. Lykilstarfsmenn fengu hlutdeild í öllum kaupum með afslætti. Áður en varði var komin fjórföld til áttföld gírun í pýramídana. Þegar sneyddist um lánsfé og farið var að kalla eftir frekari tryggingum hrundu pýramídarnir. Svona fjárfestahópar urðu til í kringum alla viðskiptabankana og marga fjárfestingarsjóði sem stofnaðir voru. Úr þessu urðu hringspíralar lána, fjárfestinga, skuldsettra yfirtaka og uppskrúfaðra veða. Að lokum vorum það við, almenningur, sem lá í valnum blóðrisa og blankur eftir hildarleik spilavítiskapítalistanna.\"

Össur metur landslagið svona í viðskiptalífinu: \"Arion er væntanlega að bregðast við nýrri samkeppni nýs banka, Kviku, sem varð til á dögunum. Kvika lýsti yfir að bankinn hyggðist innleiða nýja fjárfestingastefnu sem snýr að ”samvinnu bankans og viðskiptavinarins” sbr. fréttatilkynningu frá Kviku. Á mæltu máli þýðir þetta að eigendum, starfsmönnum og viðskiptavinum er þvælt saman í eina bendu. Þeir verða allir áhættufjárfestar, án aðgreiningar eða armslengdar sjónarmiða. Bankinn fjárfestir með viðskiptavinum og útvaldir viðskiptavinir með bankanum. Sérvaldir starfsmenn fá að dansa með til að ýta undir frumkvæði og framtak – og það stigmagnar áhættuna. Þegar vel gengur græða allir en þegar blæs á móti tapa allir.\"

Þesi reyndi stjórnmálamaður sér þróunina þessa: \"Hinir bankarnir, og sjóðir, munu leiðast inn á sömu braut því annars tapa þeir fjársterkum viðskiptavinum. Arion og Kvika eru því einfaldlega að endurreisa ”casino banking” á Íslandi. Í því ljósi, og eitraðrar reynslu af samskonar gróðrabralli í aðdraganda hrunsins, ætti að vera skýlaus og ófrávíkjanleg krafa að kljúfa bankana í almenna viðskiptabanka og fjárfestingarbanka áður en gjaldeyrishöftum verður aflétt og bankarnir komast aftur á alþjóðlega fjárfestinga- og lánamarkaði. Almenningi verður ekki boðið á það ball. Hann mun hins vegar sitja uppi með afleiðingarnar - fyrr eða síðar,\" skrifar Össur á fésbók sína í dag.