Kanónur kjaramála mæta á þjóðbraut

Þungavigtarfólk í kjaramálum landsmanna mætir á Þjóðbraut Páls Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld en þar verða þær lausnir sem eru mögulegar við samningsborðið ræddar til þrautar.


Gestir þáttarins verða Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands, Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 


Mikil harka er hlaupin í deilur launaþegahreyfinga við atvinnurekendur um allt land og stefnir þriðjungur vinnufærra landsmanna í verkföll. Væna þar hvorir aðra um óheilindi og lýðskrum, ýmist með því að halda á lofti alltof háum launakröfum sem verðbólgubál muni eyða á svipstundu, ellegar að bjóða launafólki langtum minni hækkanir en forkólfar atvinnulífsins séu sjálfir að bjóða fólki innan eigin félaga. Þannig hefur verið bent á að Björgólfur Jóhannsson formaður Samtaka atvinnulífsins hafi samið við flugstjóra hjá sínu fyrirtæki, Icelandair um ríflega 300 þúsunda króna launahækkun á mánuði, en neiti á sama tíma að samþykkja 300 þúsund króna lágmarkslaun úti á almennum vinnumarkaði. Atvinnurekendur hafa á móti bent á að rífleg hækkun lágmarkslauna, sem þeir eru tilbúnir að skoða gaumgæfilega, geti ekki rúllað upp allan launastigann með afleiðingum sem allir þekki, ekki síst launafólkið sjálft.


Lausn deilunnar verður í miðju umræðunnar í kvöld hjá Páli og viðmælendum hans.


Horfa á Þjóðbraut: