Traust almennings á Hæstarétti hefur minnkað mjög undanfarin misseri og vart mun áfellisdómur Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sigríðar Elínar Sigfúsdóttur gegn íslenska ríkinu verða til að styrkja trú fólks á þessum æðsta dómstóli landsins sem fagnaði hundrað ára afmæli á dögunum.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, verður viðmælandi Björns Jóns Bragasonar í þættinum Sögu & samfélagi á Hringbraut í kvöld, þar sem rætt verður um stöðu Hæstaréttar á aldarafmælinu. Jón Steinar er meðal annars spurður að því í viðtalinu hvort hann telji að dómarar hafi meðal annars í svokölluðum hrunmálum verið að þóknast almenningsálitinu. Hann svarar því svo:
„Auðvitað læðist sú hugsun að mér. Hér varð hrun. Menn voru reiðir hér, eðlilega. Margir töpuðu atvinnunni, urðu stórskuldugir, töpuðu heimilum sínum ...“
Innskot spyrjanda: „ ... og líka hæstaréttardómarar sem töpuðu peningum.“
Jón Steinar svarar:
„Já, líka það. Það er nú eitt að tapa peningum í hruninu svo milljónum skipti og setjast svo sem dómarar í málum yfir þeim sem verið að að draga til ábyrgðar á þessum atburðum. Þetta er auðvitað ekki frambærilegt í ríki sem vil kalla sem réttarríki.“
Jón Steinar er spurður að því í viðtalinu hvort hann hefði sjálfur vikið sæti hefði hann fengið til meðferðar mál einhvers banka sem hann hefði tapað fjármunum í viðskiptum við. Hann kveðst afdráttarlaust hafa vikið sæti við slíkar aðstæður. Um það kemst Jón Steinar svo að orði:
„Það er alveg heilagur hlutur hjá dómara sem tekur starf sitt alvarlega að taka ekki þátt í að dæma í máli manns sem er sakaður að hafa valdið því með einhverjum hætti. Og það sem er verst við þetta er að það vissi enginn um þessi tengsl dómaranna við þessi mál og kannski héldu þeir að þeir kæmust bara upp með þetta af því að það vissi enginn um þessi fjármálatengsl. Svo gerðist það hérna fyrir einhverjum árum síðan að það birtust – illa fengnar held ég – upplýsingar um fjármál dómaranna hjá Glitni banka og þá kemur það í ljós að þeir eru hver á fætur öðrum – og ekki síst kannski sá sem var nú áhrifamestur í hópnum [sem] átti stórkostlegra fjárhagsmuna að gæta í þessu bankahruni og hafði orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni. Það má bara spyrja hvaða mann sem er sem er sakaður um að hafa átt þátt í að valda öðrum manni tjóni: Vill hann að sá maður dæmi í máli sem er höfðað gegn viðkomandi til ábyrgðar á því? Það sjá það allir að þetta er alveg hræðilegt að svona skuli gerast í okkar kerfi sem við viljum að virki eins og það á að virka.“
Hringbraut í kvöld klukkan 21.30.