Kannski hefði ég betur tapað!

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar segir að það hefði mögulega verið betra fyrir hann persónulega ef hann hefði tapað formannskosningu á síðasta landsfundi Samfylkingarinnar.

Þetta kom fram í viðtali við Árna Pál í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun, en þar vitnaði hann til þess að hann hefði, þó ekki væri nema með einu atkvæði, haft betur í formannskosningunni - og það hafi ákveðna merkingu í sínum huga: \"Í því felst ábyrgð,\" sagði Árni Páll og bætti við: \"Maður getur ekki bara hlaupist burt. Auðvitað hefði kannski verið betra fyrir mig persónulega ef ég hefði tapað. En ég vann. Og ég verð að axla ábyrgð á því að ég hef umboðið,\" sagði Árni Páll í þættinum og sagðist vart ætla að vanda flokksins mætti að miklu leyti rekja til formannsins: \"Ef ég teldi að ég væri vandamálið og að aðrir flokkar væru ekki í neinum vanda þá væri það augljóst að lausnin væru sú að ég stigi til hliðar. En það eru allir grónir flokkar í þessum vanda.“

Árni Páll hrósaði Pírötum í þættinum og sagði þá vera jákvæða og hafa margt fram að færa. Það væri þjóðinni til sóma að fylkja sér um slíkt stjórnmálaafl. Hvað hann sjálfan varðaði væri verkefnið augljóst: \"Bjóða fleirum til samstarfs og hætta að tala sem hefðbundin gamaldags stjórnmálaflokkur. Eftir stendur að þetta snýst ekki um mig og það verður tækifæri til þess að fram fari allsherjaratkvæðagreiðsla um formann vel fyrir næstu kosningar. Ég mun því þurfa að sækja mér umboð ef aðrir gefa kost á sér til formennsku,“ sagði Árni Páll.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og fyrrum varaformaður Samfylkingarinnar var gestur í Vikulokunum á Rás 1 í gær og ræddi þar einnig stöðu flokksins og formannsins. Hann sagði að mikið þyrfti að gerast innan Samfylkingarinnar til að breyta stöðu flokksins. Hann var spurður um frammistöðu formannsins og hvort hann væri rétti maðurinn til að ná flokknum aftur upp í fyrri hæðir. Dagur svaraði því ekki afdráttarlaust en sagði að Árni Páll hefði fengið afgerandi kosningu sem formaður árið 2013 þegar hann sigraði Guðbjart Hannesson í formannskjöri og skýrt umboð til að leiða flokkinn: \"Ég hef í raun mikla samúð með honum í stöðunni eins og hún er. Þetta hefur ekki gengið vel. En ég bíð, eins og aðrir, eftir næsta flokkstjórnarfundi og ég held að þetta snúist ekki bara um einn forystumann eða forystuna heldur líka þessa skýru pólitík. Það er líka bara eitt ár síðan að Samfylkingunni gekk býsna vel í sveitarstjórnarkosningum,“ benti Dagur á.