Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra var gestur Þjóðbrautar í morgun. Aðspurð sagðist hún ekki kannast við slagsmál í ríkistjórninni, einsog Eygó Harðardóttir kvartar undan.
Ragnheiður Elín segir tvo flokka mynda ríkisstjórnina og eðlilega deili fólk stundum. Hún segir mest vera tekist á um peninga og hún sem ferðamálaráðherra gæti eflaust sagt of mikla peninga fara í aðra málaflokka en ferðamálin, en sjaldan fái allir ráðherrar allar sínar óskir uppfylltar.
„Það kalla ég ekki slagsmál,“ sagði Ragnheiður Elín.