Kannast ekki við drukkinn þingmann

Ummæli Lilju Rafneyjar, þingmanns VG, úr ræðustóli á Alþingi í gærkvöld hafa vakið mikla athygli en Lilja kvartaði undan flissandi þingmanni sem væri undir áhrifum er hún gerði grein fyrir atkvæði sínu í fjárlagaumræðunni. Ekki nafngreindi hún þingmanninn en Ragnheiður Ríkharðsdóttir kom upp skömmu síðar og gerði athugasemd við að þingforseti hefði ekki beitt sér vegna ummælanna. Sjá frétt Hringbrautar sem sagði fyrst frá málinu hér.

Samkvæmt heimildum Hringbrautar liggur ekki fyrir hvaða þingmanni Lilja Rafney sendi þá glósu úr ræðustóli að vera flissandi og undir áhrifum.

Jón Gunnarsson segir í ummælum þar sem frétt Hringbrautar um málið var deilt: „Það er um að gera að spyrja Lilju Rafney. Hún veit eitthvað sem hefur farið framhjá okkur hinum.“

Hringbraut hefur ekki náð sambandi við Lilju Rafneyju.