Shusuke Ogawa er japanskur blaðamaður sem hefur verið hér á landi undanfarnar vikur til að kynna sér samskipti álfa og manna.
Í frétt á vísir.is segir að áhugi Ogawa á málefninu hafi vaknaði þegar hann heyrði af óhöppum við framkvæmdir hér á landi sem rakin voru til álfa. Ogawa hefur ferðast um landið og tekið viðtöl við fjölda fólks vegna álfatrúar og ætlar sér tvo mánuði í verkið. Einnig hefur hann fundið með Vegagerðinni og segir það hafa komið sér á óvart hve alvarlegum augum það væri litið að hrófla ekki við tilteknum grjótum í vegagerð. Einnig hefur hann rætt við forstöðukonu álfasafnsins í Hafnarfirði.
Hann hefur komist að því að álfatrúin sé meiri meðal eldra fólks en sannanlega enn lifandi meðal þjóðarinnar.
Áður hefur Ogawa, sem er menntaður í háskóla í Tokyo, ferðast um Sýrland og Egyptaland og fylgst með atburðum í arabíska vorinu.