Kannabis fannst hjá verðlaunaræktanda

Kannabisplöntur voru gerðar upptækar í Svarfaðardal í gær. Grunaðir ræktendur voru verðlaunaðir í fyrra fyrir nýsköpun í lífrænni ræktun. Lögreglan lagði einnig hald á klórblöndu sem boðin var til sölu í lækningaskyni á netinu.
 
Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV þar sem fram kom að Landlæknir varaði við sambærilegri klórblöndu árið 2010.
 

Það var fréttavefurinn stundin.is sem upphaflega greindi frá fíkniefnafundinum en samkvæmt fregnum hans lagði lögreglan á Norðurlandi hald á 58 kannabisplöntur á bæ í Svarfaðardal. Einnig lagði hún hald á búnað til ræktunar. Við húsleit á Akureyri voru svo teknir nokkir tugir lítra af klórblöndu og lyfjaglös undir vökva. Þrír menn voru handteknir en sleppt að loknum yfirheyrslum.

Húsleitin var gerð eftir að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands lagði fram kæru þess efnis að þar væri verið að búa til lyfjablöndu, úr klórblöndu og sítrónusýru, ætlaða til lækninga. Stundin greindi einnig frá því í gær að Lyfjastofnun hefði borist ábending um að verið væri að búa til og dreifa klórblöndu í lækningaskyni á Akureyri. Erindið var sent til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands. Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi á Akureyri sagði í samtali við fréttastofu að hann hefði metið málið þess eðlis að því bæri að vísa til lögreglu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV stendur fyrirtækið Gæðafóður á bak við framleiðslu og dreifingu á lyfjablöndunni. Blandan, sem auglýst er á vefsíðu fyrirtækisins, er sambærileg við svokallaða MMS-blöndu. Árið 2010 sendu sóttvarnalæknir, eitrunarmiðstöð Landspítalans og fleiri út viðvörun um slíka blöndu sem væri beinlínis hættuleg. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að við húsleitina hafi verið lagt hald á nokkra tugi lítra af natríum hypóklóríti, minniháttar magn af sítrónusýru og lyfjaglös undir vökva.

Á vefsíðu Gæðafóðurs kemur fram að fyrirtækið vann fyrstu verðlaun á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni á Akureyri í fyrra. Það sérhæfir sig í lífrænni síræktun sem fer fram í sérstökum gámum sem stjórna bæði hita og vökvun. Verðlaunaféð var ein milljón króna.

Lögreglan gerði einnig húsleit á sveitabæ í umdæmi sínu en samkvæmt heimildum fréttastofu er bærinn innst í Svarfaðardal. Ekki er búið á bænum og var hann í útleigu. Þar fundust 58 kannabisplöntur, 100 grömm af kannabisefnum og tæki og tól til ræktunar. Þrír voru handteknir í tengslum við málið og samkvæmt heimildum fréttastofu tengjast einhverjir þeirra bæði kannabisræktuninni og framleiðslu á áðurnefndri klórblöndu.