Magnús Stefánsson, sem rekið hefur forvarnarfræðslu og farið í skóla um land allt, segir frá því sem foreldrar almennt vita ekki um kannabisneyslu í ,,Fólki með Sirrý\" á miðvikudag kl. 20:30 á Hringbraut. Og Björg Kjartansdóttir, móðir ungs manns sem fór illa út úr kannabisneyslu í menntaskóla, segir frá því hvernig þetta er eins og rússnesk rúlletta: Sumir verða fyrir skoti og það rústar lífi þeirra. Sonur hennar keypti efni í sjoppunni í MH og líf hans umturnaðist.
Magnús segir að foreldrar sem þekktu kannabis á hippaárunum eða bara upp úr 1980 telji að marijuana sé enn 2-4% að styrkleika. Og hass 4-6% eins og það var hér á árum áður. En staðreyndin er sú að marijuana er 12-35% að styrkleika í dag, hass 20-50%, hassolía 50-70% og kannabisvax 70-90%. Þetta er unnið úr náttúrulegu plöntunni Cannabis en samt eru framleiðendur að fá uppskeru allt að 11 sinnum úr einni plöntu. Þetta er orðið svo miklu hættulegra en það var fyrir ekki lengra en 10 árum síðan. Miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi og áróður seljenda mikill. Nánar er rætt um áhrif kannabisneyslu á ungt fólk í þættinum miðvikudag kl. 20:30.
Hér er brot úr þættinum.