Kanínur eru að verða æ meira vandamál í matjurtagörðum landsmanna, enda hafa þær fjölgað sér gríðarlega við marga helstu þéttbýlisstaði landsins síðustu ár, svo sem á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Og þessi vinalegu dýr þurfa vitaskuld að nærast - og þá liggur beinast við að skoppa yfir girðingarnar á næsta grænmetisgarði og verða sér úti um allt sem þar er ræktað af alúð og kostgæfni. Þetta vandamál þekkir Auður Jóhannesdóttir sem var heimsótt í þættinum Matjurtir á Hringbraut í gærkvöld en hún hefur um árabil haldið úti um 100 fermetra matjurtagarði í Breiðholti ásamt fjölskyldu sinni.
Hún þekkir vel til þess leiða siðar vegfarenda að skjótast inn fyrir girðinguna og hirða uppskeruna í leyfisleysi, altént einhvern hluta hennar - en nú ber nýrra við; kanínurnar eru orðnar miklum mun stórtækari í þessum efnum en fingralangt mannfólkið.
Auður mun ausa úr skálum visku sinnar í þætti kvöldsins en hún er margreynd í matjurtaræktun eins og allir aðrir viðmælendur Auðar Rafnsdóttur í þessum þáttum sem verða á dagskrá Hringbrautar í allt sumar.
Þátturinn var frumsýndur klukkan 20:15 í gærkvöld og verður endursýndur í dag og einnig á miðvikudagskvöld.