Goji-ber = hugsa hraðar en framsókn!

\"Dögurður hins sanna vestfirðings: Stór skál af frystum aðalbláberjum tíndum á Langadalsströndinni í Djúpinu með súrmólk í útálát, skeið af goji-berjum, kanell í óhófi, hrökkbrauð með reyktum rauðmaga af Drangsnesi.\"

Þarna er kominn árbítur Össurar Skarphéðinssonar sem hann deilir með vinum sínum á fésbók í morgunsárinu þessa föstudags - og er nema von, spyr hann \"að þrátt fyrir elnandi pólitískan aldur hlaupi ég enn og hugsi hraðar en Framsóknarmenn?\"

Hann ljóstrar loks upp glimrandi leyndarmáli: \"Á sunnudögum leyfir dr. Árný stundum staup af Gammel dansk. En það þarf að liggja vel á henni.\"